Lagasafn. Uppfært til febrúar 2001. Útgáfa 126a. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um heimild fyrir ríkisstjórnina til þess að staðfesta fyrir Íslands hönd samþykkt um alþjóðareglur til að koma í veg fyrir árekstra á sjó, 1972
1975 nr. 7 26. febrúar
1. gr. [Ríkisstjórninni er heimilt að staðfesta fyrir Íslands hönd samþykkt um alþjóðareglur til að koma í veg fyrir árekstra á sjó, 1972, sem undirrituð var í Lundúnum 20. október 1972.
Ríkisstjórninni er enn fremur heimilt að staðfesta fyrir Íslands hönd breytingar á alþjóðareglunum sem gerðar voru í Lundúnum 19. nóvember 1981, 19. nóvember 1987 og 19. október 1989.
Alþjóðareglurnar með áorðnum breytingum eru prentaðar sem fylgiskjal með lögum þessum.]1)
1)L. 19/1993, 1. gr.
2. gr. [Þegar alþjóðareglurnar með áorðnum breytingum öðlast gildi að því er Ísland varðar skulu þær hafa lagagildi hér á landi.]1)
1)L. 56/1986, 2. gr.
3. gr. …
4. gr. Brot gegn reglum og viðaukum, sem samþykktinni fylgja, varða sektum, ef ekki liggur þyngri refsing við.
Fylgiskjal.
Samþykkt um alþjóðareglur til að koma í veg fyrir árekstra á sjó, 1972. – London 20. október 1972.1)
1)Sjá Lagasafn 1995, bls. 1164–1176.